Smekkleysi biskups og ríkiskirkjunnar

Alveg er biskupinn búinn að spila rassinn út úr buxunum með endalausri neikvæðni í fjölmiðlum. Þetta er bara eins og að horfa á Fox News Shocking

Ég gæti best trúað því að það hafi aldrei verið eins margir sem hafa skráð sig úr þjóðkirkjunni eftir að núverandi biskup tók við. Maðurinn er bara alveg úr takti við tímann og tíðarandann

Það er alveg ljóst að hann er ekki að reyna að fá fólk til liðs við sitt trúfélag enda ákaflega dapur sölumaður Woundering
Merkilegt nokk ef það væri ekki bara best að "einkavæða" þjóðkirkjuna.  Það sést best að þær ríkisstofnanir og fyrirtæki sem hafa verið einkavædd hafa blómstrað eftir það.
Hér ríkir trúfrelsi og því fáránlegt að það sé þjóðkirkja í samkeppni við aðrar kirkjur (lesist: ríkið í samkeppni við "einkafyrirtæki").

Þessi auglýsing Símans er ein sú allra besta sem ég hef séð í íslensku sjónvarpi!!
Bravó Síminn Smile 


mbl.is Biskup segir nýja auglýsingu Símans smekklausa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mercedes-Benz í Second Life

Þessi leikur er orðinn svo merkilegur að stórfyrirtæki á borð við Daimler-Chrysler (sem mun fljótlega fá heitið Daimler) eru búnir að opna "útibú" í leiknum.mdk_ferraris

Hér fyrir ofan er t.d. ein "persónan" í leiknum búin að fá sér nýjann C-class Benz Grin

Nánari upplýsingar er m.a. að finna á :
http://www.mercedes-benz-secondlife-infos.com/


mbl.is Annað líf í sýndarveruleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úff... Stuðmenn á einhverju einkaflippi??

Mikið ofboðslega eru Stuðmenn eitthvað daprir í kvöld Woundering.  Maður gæti haldið að þeir hafi ákveðið að vera með einhverskonar Kraftwerksútgáfu af Stuðmönnum.
Það vantar bara allt stuðið í Stuðmenn í kvöld.  Hvað klikkaði??

N.b. þetta er skrifað þá er KraftStuðVerk enn að spila og Bó Hall að byrja að syngja með TeknóStuðmönnum.  Bó er auðvitað alltaf flottur en það mætti halda  að það væri bunch af Bolum að spila undir Shocking

Jæja, ætla að teygja mig í fjarstýringuna og skipta um rás, þetta er hræðilegt Sick


mbl.is Aldrei fleiri á Laugardalsvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Blaðið

Hef gluggað í Blaðið í þau skipti sem það hefur borist inn um lúguna hjá mér og hvorki fundist það neitt sérstaklega spennandi né merkilegt þó svo að inn á milli séu ansi góðar greinar en nú verður gaman að sjá hvað gerist.

Ólafur er toppmaður og óska honum til hamingju með nýja starfið.

Það verður hins vegar áhugavert að sjá hvort honum tekst að innleiða zetuna í þetta blað LoL
Reikna með að hún verði a.mk. í ritstjórnargreinum Grin


mbl.is Nýr ritstjóri Blaðsins: Aukin áhersla á nánasta umhverfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við komumst ekkert áfram...

Iss... skiptir engu máli, við komumst pottþétt ekki áfram í keppnina á laugardaginn.  Verðum þá bara límd yfir kosningasjónvarpinu á Stöð 2.

Skiptir engu máli hvað við sendum svo að við ættum bara að senda eitthvað skemmtilegt.
Mæli með að við sendum Silvíu Nótt aftur og aftur, skiptir engu máli hvort við komumst áfram eða ekki.  Annars saknaði ég alltaf þess að sjá ekki Botnleðju taka Eurovísu Cool

Tek það þó fram að Eiki rauði er toppperformer, málið er bara það að þetta er orðið svo lágkúruleg keppni klæðalítilla dansmeyja og dragdrottinga þar sem gæði söngs og lags skipta engu máli FootinMouth

 

 


mbl.is Eiríki og félögum tókst vel upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auglýsingar...?

Þetta er önnur fréttin á stuttum tíma þar sem Hátækni fær líklega ókeypis auglýsingu fyrir Nokia síma þó svo í þessu tilfelli sé verið að ræða um þjófnað á búnaði.
Segir ekki sagan að slæm umfjöllun sé betri en engin umfjöllun? Wink
A.m.k. fékk þessi sími ágæta umfjöllun í þessari frétt og nú verður eftirspurnin líklega enn meiri Grin

 

 


mbl.is Eftirsóttir farsímar hverfa á leið til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úff... samkeppnislögin eru frekar skrýtin

Ekki það að ég sakni allra þessa stöðva... en samt þá finnst mér þessi samkeppnislög ótrúlega flókin og skrýtin.

Kannski er ég svona vitlaus en er það virkilega í lagi að kaupa upp keppinautinn til þess eins að loka honum?
Ég hélt að samkeppnislög og reglur ættu að koma í veg fyrir slíka gjörninga.

Má Vífilfell þá kaupa Ölgerðina?  Vodafone kaupa Símann?  Hagar kaupa Kaupás?

Hvernig fór þetta aftur með Frumherja, fengu þeir ekki leyfi til þess að Aðalskoðun, eina samkeppnisaðilann á markaðinum ?

Er kannski bara í lagi að vera stóri aðilin sem kaupir litla aðila upp til þess að "eyða" þannig mögulegri samkeppni?

Shocking Shocking Shocking Shocking Shocking Shocking Shocking


mbl.is Ekki aðhafst vegna kaupa 365 á útvarpsstöðvum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byrjað að blogga....

Er ekki málið að byrja að blogga? W00t

Þessi bloggfærsla er reyndar sú fyrsta hér á mbl blogginu en fyrir ca. 10 árum síðan byrjaði ég að setja upp síður á Geocities þar sem ég reyndi að blogga en þá var reyndar varla búið að finna upp bloggið Blush - hætti svo eftir ca. 1 ár - veit ekkert hvað varð um "contentið" Shocking
Bjó mér reyndar til síðu á blogspot.com en man bara ekki URLið Errm 

Þá er bara að henda sér út í djúpu laugina LoL

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband