Smekkleysi biskups og ríkiskirkjunnar

Alveg er biskupinn búinn að spila rassinn út úr buxunum með endalausri neikvæðni í fjölmiðlum. Þetta er bara eins og að horfa á Fox News Shocking

Ég gæti best trúað því að það hafi aldrei verið eins margir sem hafa skráð sig úr þjóðkirkjunni eftir að núverandi biskup tók við. Maðurinn er bara alveg úr takti við tímann og tíðarandann

Það er alveg ljóst að hann er ekki að reyna að fá fólk til liðs við sitt trúfélag enda ákaflega dapur sölumaður Woundering
Merkilegt nokk ef það væri ekki bara best að "einkavæða" þjóðkirkjuna.  Það sést best að þær ríkisstofnanir og fyrirtæki sem hafa verið einkavædd hafa blómstrað eftir það.
Hér ríkir trúfrelsi og því fáránlegt að það sé þjóðkirkja í samkeppni við aðrar kirkjur (lesist: ríkið í samkeppni við "einkafyrirtæki").

Þessi auglýsing Símans er ein sú allra besta sem ég hef séð í íslensku sjónvarpi!!
Bravó Síminn Smile 


mbl.is Biskup segir nýja auglýsingu Símans smekklausa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband